Kókalóca dancing like the -girlieees !!
Friends 4 EvA

""

*Girlies*
NewYork!!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1425 dögum
New York
29.05.2008 05:10:53 / Helga

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!

Sóley er Sofandi og við Kittý erum ný búnar að grilla sykurpúða á gas-eldavélinni niðri haha og erum í svefngalsa og ákváðum að deila þessu með ykkur hahaha;

    
    
    
    
    
    
    
    
    
 HAHAHAHAHA!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2008 23:08:56 / Auður

Ég lofaði ykkur RISAbloggi.

HÆ!=D ég held ég hafi ekki farið inní þessa vefstjórn í eigum við að segja allavegana einhverja mánuði. Here it goooooesss.

Ég fór til London í febrúar, fórum ég mamma pabbi og brói ;) Við tókum þennan allsvakalega túrista á ferðina og fórum í London eye, british museum, madame tussuvaxmyndasafnið (tussauds.. tousoe..?), og helling af þessu túristadóti að ógleymdu oxford stræti;) sem ég reyndar verslaði mjög lítið á, var of upptekin við að vera túristi sjáið þið til.

Vorum á tveimur hótelum, vorum í fjórar nætur og splittuðum þessu þannig að fyrstu tvær næturnar ætluðum við að vera nálægt oxford stræti á 2** hóteli sem kostaði skít á priki, og svo síðustu tvær á 5***** hóteli og liggja í vellystingum :D Og ég er ekkert að djóka, fjölskyldan mín er bara skemmd í hausnum eftir að hafa verið í þessu hreysi fyrstu tvær næturnar, ég ætla ekki að lýsa því, of hræðilegt :'D En svo get ég sagt ykkur, vorum á Mayfair hótelinu síðustu tvær næturnar, það eru oft frægar stjörnur sem gista þarna var okkur sagt, en ég hitti nú ekki neina. iss.
Það var fataherbergi og svo voru marie claire og vogue og seventeen inní herberginu, sjúklega stór rúm og fáránlega fltt húsgögn, og úff baðherbergið, jeminn eini. Það kom kona að búa um rúmið kvöld og morgna, semsagt gerði það svona dúlló svo við gætum farið beint að sofa. og ég veit ekki hvað og hvað..
Enda vorum við svo staurblönk eftir þessa ferð haha. :lol:

páskar, ég borðaði páskaegg, annars man ég ekki rassgat eftir þeim.

Og núna kemur sko aðalbloggið mitt, ef þið hafið enst þetta langt, sem ég ætla rétt að vona því ég er ekki einu sinni byrjuð.

Bekkurinn minn í Kvennó, allir litlu tjébekkingarnir, fór til Danmörku 29. mars til 5.apríl í svona ferð alveg eins og við nokkrar fórum í 10. bekk! ohh muniði eftir þeirri ferð.. ;)
Allavegana og ég ætla bara að vera ógislega flippuð ómægad og bara skrifa alla ferðasöguna gellur. og hún er aansi viðburðarík.

29.mars Laugardagur ; Lögðum af stað frá BSÍ klukkan hálf5 um morguninn, ógeðslega fersk! Brunuðum uppá flugvöll og í gegnum fríhöfnina og inní flugvél og vorum til kaupmannahafnar klukkan eitthvað um hádegi, tókum lestina inní kaupmannahöfn og fórum á hótel absalon rétt hjá strikinu, skelltum töskunum okkar í herbergin og tókum stefnuna á strikið, höfðum um það bil 3 eða 4 tíma svo við tókum þetta hratt 8| Ég, Thelma og Anna Marie rúlluðum þessu upp og vorum komnar upp á hótel áður en búðirnar lokuðu, nenntum ekki meiru haha.  Enda voru þær tvær búnar að kaupa sér meira en nóg og ég einhvern veginn fann bara ekki neitt, nema auðvitað eitthvað smá. Um kvöldið fórum við svo allur bekkurinn á einhvern pítsastað og borðuðum og fórum svo aðeins og röltuðum um bæinn, vorum svo öll komin upp á herbergi um 11 leytið. :)

30.mars Sunnudagur ; Lögðum að stað klukkan 9 frá kaupmannahöfn, stefnan tekin á karen blixen safnið (score eða?), einkar tilgangslaust og leiðinlegt safn en svo fórum við líka á Louisiana safnið og það var bara voðalega gaman :D Fullt að skoða og gera og fínn garður sem við tókum ágætis myndaflipp á :D Svo var það Mcdonalds og svo um klukkan sex um kvöldið vorum við komin til Sonderborg á jótlandi þar sem tóku á móti okkur krakkarnir sem við höfðum verið að skrifast á við í 3 vikur, ég er að segja ykkur það, stresskastið sem allir fóru í þegar við sáum krakkana, haha allir panikkeruðu.
Allavegana, svo hitti ég minn gaur, hann johannes/joey, pönkarinn í bekknum, með rauða strípu í hárinu, svartar rifna grifflur, sá eini sem reykir í bekknum, eruði ekki komin með ágætis mynd af honum í hausnum? Munið eftir að bæta ómótstæðilegum hendum við myndina ykkar :lol:. Fórum heim og svona, átti fyrst að sofa bara inni hjá honum en það breyttist seinna um kvöldið, sem betur fer, þegar ég fékk herbergi litlu systur hans. Fórum svo aðeins til vina hans, þar sem keðjureykingar og bjórdrykkja fór fram, ekki af minni hálfu þó, því ég var orðin hálfstoned af þreytu eftir daginn.

31.mars Mánudagur ; fyrsti skóladagurinn, fórum á hjóli í skólann og ég er ekki að ýkja þegar ég segi að þetta sé að minnsta kosti sú sama vegalengd eins og ef ég myndi hjóla niður í Kvennó heiman frá mér, og hjólið mitt var svona rosalega þunn dekk og ég datt miiiiiiilljón sinnum, enda ekki búin að hjóla í mörg mörg ár:o og svo þegar við komum í skolann var leikfimi! game eða? Fórum í helling af svona "bonding" leikjum, þetta var alveg ágætt fyrir utan það að fólki gekk heldur illa að bera fram nafnið mitt í nafnaleikjunum :lol: fórum svo að vinna í verkefninu okkar með dönunum en út á það gekk öll þessi ferð, að læra, ekki að það hafi mikið verið gert af því 8) svo eftir skóla fórum við aðeins í bæinn og svona, verslaði ekkert, og það eiginlega gilti fyrir alla ferðina buhuhu.. fórum svo heim og vinur joeys kom með okkur og við lágum í klessu að hofa á family guy næstu tvo tímana, borðuðum kvöldmat og fórum svo til sömu vina hans og á sunnudeginum.

1.apríl Þriðjudagur ; fórum í skólann og unnum í verkefninu, löbbuðum í skólann því joey lagði ekki í það að láta mig hjóla aftur haha:lol: svo um 10 leytið fóru tjébekkingarnir við í Sonderborg slot/höllina og skoðuðum hana með leiðsögumanni og svo klukkan tólf á hádegi fórum við helvítis fjallahjólatúr upp að einhverri myllu sem var einhverja kílómetra í burtu og ég er að segja ykkur.. harðsperrurnar, voru allsvakalegar. 8| Þar voru danirnir búnir að undirbúa einhverja frásögn um þessa myllu og svona og svo verð ég að segja ykkur að ég var kölluð eldingin eftir heimferðina því ég var fyrsti íslendingurinn til að koma til baka í skólann, erum við að tala um krafta eða? :lol: fórum svo aðeins í bæinn eftir skólann og svona en daninn minn nennti ekki memm, svo hann og vinur hanskomu og sóttu áttavilltu mig um fimmleytið og við fórum til fyrrnefnda vina hans að tjilla í dragon ball haha, sem ég er orðin alveg góð í sko, miðað við :haha: svo um kvöldið fórum ég, Thelma og Sara heim til Hjalta, íslenska gaursins í danska bekknum, ætluðum að sturta niður nokkrum bjórum en þetta endaði bara í tjilli og spjalli.

2.apríl Miðvikudagur ; Fórum við tjébekkingarnir til Ribe, Vadehavet/Römö og Tönder, sami hringur og við fórum í, í 10.bekk. heilsdagsferð og ég var sjúklega ánægð með að komast aftur í det gamle apotek haha:haha: komum svo heim einum og hálfum tíma fyrr en ætlað var svo við skunduðum bara í bæinn þangað til klukkan var sex og danirnir komu að ná í okkur ósjálfbjarga lúðana. Fórum í skólann þeirra um kvöldið að horfa á danska mynd sem hét Nordkaft og fórum svo heim að sofa.

3.apríl Fimmtudagur ; Skólinn og verkefnið okkar, labbaðein í skólann því daninn minn þurfti ekki að mæta fyrr en svo seint, fórum svo í skoðunarferð um háskólann á svæðinu, sjúklega flottur og fallegur og frábær og.. já. náði að vinna okkur öll á sína hlið haha.  Svo um hádegi kom rúta með öllum dönunum innanborðs og náði í okkur og stefnan tekin á Flensborg í Þýskalandi!:haha: Fórum fyrst í Phänomentra safnið, sem var allt í lagi og fengum svo 4 tíma í að versla, ég og Thelma keyptum okkur svolítið rosalega skemmtilegt hahah sem ég ætla nú ekkert að nefna hér :lol: og svo keypti ég mér eitthvað af fötum og drasli. komum aftur til Sonderborgar rétt yfir sex, náði að fara heim í korter, skipta um föt og aftur út, því við vorum öll að fara á stað sem heitir Mongolian Barbeque, ógeðslega gott að borða þar, um klukkan níu fórum við svo yfir á stað sem heitir Maybe not bob, tókum nokkur skot og drykki og svona, billjard og eitthvað dóterí, skelltum okkur svo yfir á Globe fyrir frítt áfengi og strippshow, mjög svo mikð alvöru strippshow haha :lol: við tókum myndir8) dönsuðum og svona fleira skemmtilegt og þó nokkuð mikið gerðist þetta kvöld sem ég ætla ekkert að blaðra hér haha :lol: svo vildi "djammaradaninn" minn fara heim um hálftvö.

4.apríl Föstudagur ;  labbaði aftur ein í skólann, mjööög svo mikið þreytt og tók mig alveg næstum því klukkutíma að labba þetta helvíti, Ég, Thelma og Anna Marie undibjuggum svo kynninguna okkur og svo um hádegið áttu alir íslendingarnir að kynna verkefnin sín, á dönsku, fyrir alla danina, whoopi.  Gekk svona semí, ég talaði nú ensku alla vikuna ;p fórum svo eftir kynninguna heim til vina hans og vorum þar í einhverja tvæ tíma, komum heim til hans um fjögurleytið þí ég ætlaði að fara að pakka og svo bara sofa þangað til kvöldmaturinn yrði tilbúinn, nei nei kemur ekki joey hlaupandi inní herbergið mitt um hálfsjöleytið í útiskóm og jakka og segir að við erum að fara út NÚNA. Ég er ennþá bara slefandi sofandi, læt pening í vasann og fer fram með honum, er ekki mamma hans inní eldhúsi KOLKLIKKUÐ með það allra mesta killer look í heimi á mig og joey segir mér bara að fara út og við förum út, við erum komin nokkra metra þegar hann fattar að hann gleymdi drasli svo að við förum til baka og hann segir mér að bíða úti ég bara geri það, hann skilur útidyrahurðina eftir opna og mamma hans kemur BRJÁLUÐ útí dyragætt öskrar eitthvað á mig á illskiljanlegri dönsku og skellir hurðinni, ég bara uuuuh whats just happened 8| og svo kemur joey út og hann vildi ekkert segja mér hver aðdragandinn var eða neitt og sagði bara að þetta væri ástæðan fyrir því að hann væri frekar hjá vinum sínum heldur en heima og ég bara mmmkaaay. Svo vorum við náttúrulega svöng, svo að ég þurfti að kaupa handa okkur egg og beikon sem við fórum með heim til dópistavinar hans, fórum í hjónaleik, allt voða krúttlegt haha :lol: svo einkenndist kvöldið bara af bjór og vatnspípu, youtube myndböndum og romeo must die. :haha: Svo þegar joey áleit það vera öruggt að fara heim, skunduðum við heim á leið, við vorum í alveg ógeðslegu hverfi  og það var partý á efri hæðinni og við löbbum út og gaurarnir fyrir ofan kalla eitthvað niður, segir ekki joey "núna máttu byrja að vera svolítið hrædd" 8| "ég hef barið svona helminginn af þessum gaurum" 8|8| ég bara woot woot?? Svo segir hann að við ættum að fara yfir á hina gangstéttina þar sem eru tré og engir ljósastaurar því að það voru tveir gaurar nokkra metra á undan okkur og hann alveg "já við viljum ekki vekja á okkur athygli, þessir gaurar eru ekki góður félagsskapur" 8| en við komumst nú heim óhult að lokum, mamman sofnuð og ég fór að sofa. :)

5.apríl Laugardagur ; Vaknaði fimm um morguninn, klæddi mig í fötin og fór útúr herberginu, joey og pabbi hans tilbúnir að skutla mér á lestarstöðina, mamma hans í horninu á eldhúsinu ENNÞÁ með killer lookið og ég bara dreif mig út og þorði ekki að segja takk fyrir mig, yrði ekkert hissa ef ég heyrði að mamma hans væri einhver skitsófreníak.:o komum á lestarstöðina, kvaddi joey og fór um borð í lestina sem tjuggaðist af stað :haha: komum uppá flugvöll um 10-11 leytið og vorum komin heim til íslands klukkan hálfþrjú á íslenskum tíma! :d

Annars var þessi ferð alveg ótrúlega skemmtileg, og öðruvísi haha, og allt of mikið gerðist svo að ekki helmingurinn stendur hér fyrir ofan :lol:

Annars gengur lífið mitt sitt vanagang snúlurnar mínar :D Ég vinn ennþá í bíóinu, er ennþá að skíta upp á bak í skólanum, keyri ennþá græna snúðinn minn, er ennþá jafn drullulöt og lít örugglega eins út og síðast þegar þið sáuð mig :D

En þar sem ég nenni engan veginn að blogga meira og er að fara að sofa, þá góða nótt dúllurnar mínar! :D ég segi hitting bráðlega, ef ég þekki okkur rétt þá verður hann ekki fyrr en eftir prófin, en ég segi hitting í sumar allavegana! lövlöv! =*=*=*

AUÐUR/ A-DIZZLE / AUDDZ :!:

» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2008 15:42:18 / Magga

jáhalló:D

;">jæjajæja=D þá er það komið að fyrsta blogginu í apríl sem á að slá út metið síðan í hittífyrra ;D ég skal taka það að mér ef einhver LOFAR að blogga í dag eða á morgun..
;" />
;" />;">skooo það sem er að frétta af mér..:
;" />1)...
2)...
3)...
4) ég er að fara í próf bráðum =D
;" />
;" />;">hehe neinei það er nú ekkert að gerast á næsta mánuðinum nema kannski að við erum að fara á GRÍMUBALL á morgun :D og svo leikfimi í fyrsta tíma.. yum;)
;" />;">svo koma prófin bara og það tekur aaallan maí þar til við Auður StAl erum búnar að ákveða að hefja ferð til Danaveldis þar sem verður mikið djammað og mikið fjör:D
;" />;">þaðan heldur leiðin straaaaxx norður (með krosslagða fingur um að þurfa ekki að taka endurtektarpróf!:p)
;" />;">Fyrir norðan verður minns bara að vinna í kaffiteríunni á Sel Hótel Mývatn.. *big city life* það verður vonandi eeendalaust gaman.. enda verð hjá ástunum mínum tveimur :D
;" />;">Já.. ég held að ég komi bara alls ekkert suður í sumar..:S Nema hann Jón Ásgeir láti eitthvað verða af ferðinni sinni.. en hann ætlar hringinn á einum sólahring  :D þá kem ég nú með og heilsa uppá mömmu allavegana :D
;" />
;" />;">uuuhm.. páskarnir já.. ég var að vinna ALLA páskana.. fékk mér frí í 3 daga og skundaðist með foreldrunum að skera belju í sveitinni :D eða þau skáru.. ég horfði á sjónvarpið með restinni af familíunni... Við náðum að horfa á heila seríu af how i met your mother á einum sólahring :D .. eeekkert líf hérna megin.. en við fórum líka á tónleika og út á snjósleða og svona skemmtileg heit..
;" />
;" />;">vááá þið vitið ekki hvað ég hlakka til sumarsins:D ekkert nema djamm og skemmtilegheit!
;" />
;" />;">hver ætlar að lofa að heimsækja mig í sveiiiitina?:D
;" />
;" />;">eeeníhú þá er ég bara að fara að skundast í vinnuna, í leiðinni ætla ég samt að sækja Súperman búninginn minn sem ég verð í á morgun :D svo svöööl ég skal setja myndir inná þessa síðu.. eða inna mæspeisið efað ég nenni þvi ekki..
;" />
;" />;">en hei! mæspeisið mitt er www.myspace.com/magga_s og ef einhver er ekki með mig þá adda manni núna!


kv magga s
;" />

» 9 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 10:09:07 / AudurS

lololololololololololol.. ég var að lolla ykkur. lol.

Fyrst við bloggum aldrei gerum þá bara ógeðslega löng comment og bloggum þannig :D kekekekeke.

» 21 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 21:50:26 / Helga

blogg:D

hæ jám.. núna er komið að bloggi:D víí
við verðum í allvöru að vera duglegri við þetta:/.. þetta gengur ekki:(
þurfum líka að breyta öllu í mánaðarins:S..hehe nenni því ekki núna en setti samt inn smá slúður:)
annars er bara þetta same old að frétta af mér.. :P veit ekki alveg hvað ég á að blogga um..hehe vá ég er lélegur bloggari:S hehe. kannski myspace sé bara málið í dag?;D hvað varð um þessa akureyrarferð okkar? held einhvernveginn að hún muni ekki verða:/ verðum þá bara að fara saman í útilegu or sum í sumar:D með varðeld og gítar og alles;)

en nenni eila ekki að blogga meir! endilega kommentið á þetta flotta blogg mitt;S!
set inn nokkrar flottar sonna í lokin hehehe! (ekki drepa mig!)
45c98143.jpg kittý, auður og magga! picture by helgaa
ferskar í 8-9unda bekk or sum;)
6ea568a4.jpg auður picture by helgaa
hahahaha
406ce8c7.jpg helena! picture by helgaa
sætasæta
ca914360.jpg halla! picture by helgaa
sætu;)
aa51f58f.jpg kata! picture by helgaa
haha krútt!
ammlikittyar093.jpg picture by helgaa
grrrrr! haha
dhy021.jpg picture by helgaa
við ferskar! (hehe hver man ekki eftir speglapóstímabilinu?)
sakna þín kittý min:*

kv. Helga


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 20:59:00 / Kata

Hittingur á morgun!!!

Hér er planið:
-Mögulega hitta Margréti, einhver að hringja í hana, hitta hana þá um 4-5.
-Pizzumatur heima hjá Hafdísi, 16" er á 1000 kr með gosi á pizzunni, tvö álegg, 2-3 sem deila pizzu??? Láta vita hverjir vilja, hvað mikið og hvaða álegg!!! Deilum verði á pizzu þegar allt er komið á hreint. 
-Sukk og svínarí heima hjá Hafdísi með nammi og snakki sem hún er búin að kaupa. Hún er búin að kaupa fyrir 4500 kr þannig að við verðum að borga eitthvað hver til baka. 
-Allihubba mega gista!!! Koma með dýnu og sængur og annað drasl sem þarf til næturgistingar. Ef þið viljið einhverjar sérstakar bíómyndir, koma með eða láta vita. 
Kostnaður við þetta allt er líklegast í kringum 1000 kr með pizzu, þurfum bara að koma því á hreint þegar allt er orðið ljóst :)
Kata skata tölvuvitlausa sem ræður ekki við stafastærðina á blogcentral!!!



» 10 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 00:15:42 / Helga

MIKILVÆGT!!

sko.. stelpur við þurfum að gera nýtt nafn á síðuna eða breyta útfærslunni á -girlies nfaninu af því að blogcentral síður geta ekki lengur heft bandstrik í byrjun eða enda nafns síðu:/.. þannig að þurfum að breyta e-ð..! girlies með engu bandstriki eða neinu er frátekið þannig að þurfum að finna e-ð nýtt:(!! endilega komið með hugmyndir!!

svo er annað.. eigum við ekki að reyna að hittast á laugardaginn eftir viku? þá eru komin 2 ár síðan Halla lést þannig að mér finnst að við ættum kannski að reyna að hittast e-ð.. þó það væri ekki nema smá.. so náttla frábært ef einhver af okkur getur reddað húsnæði fyrir smá hitting;).. vá það væri æði að hafa sleepover:D eða jafnvel fara á AK á bretti:D.. hehe samt kannski dáldið stuttur fyrirvari:s..haha.. samt allar að reyna að taka frá daginn eða kvöldið or sum og ath hvort við getum hist heima hjá ykkur:). ætla að athuga hvort við getum verið hér en mér finnst það samt dáldið ólíklegt:( því miður:/ en ætla samt að gá;)

kv. Helga:*


» 23 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 00:09:13 / Kittý

Benni Benassi og Sander Van Doorn!!

Benni Benassi er að koma til landsins gott fólk!!! Ætla ekki allir að mæta!!?

Vetrarhátíð Techno.is

  • Exos, Plugg'd og Sindri BM spila ásammt Benni..

Þó við höfum hingað til alltaf farið á eldri...þá ætlum við núna að fara á yngri (16-20) og halda bara sjúklegt eftirpartý með Benni tunez og fá okkur Satisfaction:D!!

Svo má heldur ekki missa af Sander Van Doorn 8. mars!! no no no;)!!!:D

-ýttu mér og svo snertu miiig svo ég geti fengið fullnæiiiinguuuuu!!!!! WOOHOO:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 23:29:18 / Sóley

ooOOóóoó!!!!!

 ATH ATH ATH!!!!!!!!!! KRISTÍN HULDA ER KOMIN Á GÖTURNAR!!!! ef þið viljið halda lífi haldið ykkur þá inni!!!:D

haha nei grín:P nema það að hún sé komin á göturnar:P en hún er barasta þokkalegur driver;):** til hamingju sæta:D:*  

 anyways!! hverjir ætla sér að fara með í mega súber skemmtilegustu ferð ársins sem allir vilja koma með í aldarinnar ferð???  nöfnin takk!!! ... NÚNA!!!

við þurfum að fá að vita hverjir koma og hverjir vilja vera með í því að skipuleggja og svona:D   oooooo ég hlakka svoooo tiiiil :D:D:D:D:**

látið heyra í ykkur elskurnar:D:* 

 

kv. ÉG  (sóleyjan) 


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 02:27:26 / Kata

Hryllingsköttur

Ég verð að segja frá einu:

Fyrr í kvöld var ég að fara út með ruslið, sem svosem er ekki merkilegt. Það voru tveir bílar á planinu, mömmu og pabba og svo systur minnar. Ég tók eftir því að bíll systur minnar var með hættuljósum, sem sagt stefnuljós í báðar áttir (sem btw var fyrst bannað á Íslandi af þeirri augljósu ástæðu að það er ekki hægt að beygja í báðar áttir í einu). Ég fór inn aftur og spurði systur mína af hverju þetta væri og hún vissi ekkert um þetta.

Þannig að ég fór út, opnaði bílhurðina, og gaf frá mér hræðilegt öskur, sem er ekki mjög vanalegt hjá mér. Þá hafði sem sagt kötturinn í næsta húsi stokkið út úr bílnum og mér brá svo að ég öskraði og fékk svo allsvakalegt hláturskast á eftir. Ég veit ekki hvað nágrannarnir halda um mig.

Systir mín hafði svona klukkutíma fyrr verið að bæta á rúðupiss og af einhverjum ástæðum skilið hurðina eftir opna. Þá hafði kötturinn læðst inn og svo verið fastur inn í bílnum og af einhverjum ástæðum verið svo heppinn að rekast í takkann fyrir ljósið. Það eru víst nokkur klórför í bílnum....

 

Svona saklaust krúttuskrímsli fékk mig til að hoppa aftur á bak og öskra....

Eigum við eitthvað að hittast milli jóla og nýárs??

 

Ástarkveðjur, Katrín Rún


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 18:54:18 / Sóley

HuldaHuldaHulda;****

 daginn í gær var merkilegur dagur!!! fæðingardagur Huldu Hjartardóttur!!!!!  fyrirgefðu elskan:/ betra seint en aldrei:D:**

 

 

eeeen hér kemur söngurinn..:  hún átti afmæli í gær... hún átti afmæli í gær hún átti afmæli hún Huldaaaa hún átti afmæli í gær:D:**

Til hamingju Huldubangsi:D:** og eigðu góð jól:D:**

IMG_1415.jpg picture by mongolitija

og mynd af yndinu:D:**

IMG_1419.jpg picture by mongolitija

hahah þetta er hún Hulda:D:*


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 19:06:15 / Helga

Jólahitting?

:D Getur einhver haldið jólahitting?? það væri geðveikt gaman ef við gætum hist allar fyrir jólin.. smá sona litlujól eins og sirrý var búin að nefna:).. plís allar að ath hvort þær geti haldið.. getum haft bara svona kósý allar koma með e-ð að borða og kannski að allar komi með pakka og svo drögum við pakka:D:D ví það væri geðveikt:D:D.. get samt ekki haldið af því að ég er að vinna alla daga fram að jólum til 7-8 um kvöld:P.. :D hvað segiði samt um að reyna að hafa litlujól? getur einvher reddað húsnæði?;)..hehe

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 11:46:52 / Sóley

prófprófpróf PRÓÓÓFFF!!!!!!!!! uhhuhh :'(

helluuuuuww there:D  jææjja .. þá eru prófin byrjuð :S og ég var í mínu fyrsta áðan:S ehh ég held ég sé aftur skítfallin í stæ:S:S og helvítis tíminn var búinn þegar ég átti 2 bls eftir:S:S ehh  en ég fer í 5 próf allavegana:P svo ég bara vona að mér gangi betur í hinum:P hehe 

EN það kom hugmynd í gær!!:D brilliant hugmynd að svaka úber dúper hitting:D:D:D vívívíííí ... ég var semsagt að skoða myndir á netinu oooog fann nokkrar góðar :P híhíh

svosem þessa:D sæti hópur:D:* ooog þessa....

hahahahahahaha váá góðar minningar:'D 


HAHAHAHA vá hvað maður var lítlill:P:'D 

en ANYWAYS:D:D þa var hugmyndin aaaað við myndum endurtaka þessa YNDISLEGU ferð:D nema fara ALLAR girlies SAMAN:D:D þær sem eiga ekki bretti eða skíði leigja bara eða fá lánað:D  að fara einhvertíma eftir jólin þegar snjórinn er kominn og taka ferð saman til Akureyrar!!!:D:D:D ég veit ykkur langar ýkt mikið til þess:D:D?????   leikja bara herbergi eða sumarbústað til dæmis:D:D???? og margar okkar komnar með brumm brumm próf og bíl:D:D og ég alveg að fá mitt:P híhí...   ég er allavegana með fiðrildi í maganum af tilhugsuninni :D og veit að við erum alveg nokkrar meira en mikið til í þetta:D;)  HELGARFEEEEERÐ:D:D:!!!!!! vívívívívív  BRETTIBRETTIBRETTIBRETTII.... !!!!

langt síðan við höfum haldið hitting og farið í einhverja súber ferð:D svo er ekki STEMNING FYRIR ÞESSUUU?!?!?!?!?!?!?! ::D:D:D:D:D:D:D:D  en ja svo verðum við bara að kjósa um hvort við förum BAARA við girliesurnar eða við eigum að stofna til svaka hópferðar og leifa kærustunum (þær sem eiga) að fá að koma með:P:D?? 

ÉG VEIT AÐ ÉG ERT TIL !!!:D:D:D:D:D HVAÐ UM YKKUUUUUR????!!!!!!!!!!?????:D:D:*** 

OUT *!*!*!*!SÓLEY*!*!*!*!*


» 23 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 16:25:39 / Aldís

lítill snáði kominn í heiminn:D:D

jæja það var loks tími fyrir mann að blogga:) en mamma er búnað eiga:D:D og já það var lítill gaur eins:D algjör rúsína. hann kom semsagt í heiminn á þriðjudagsmorgun um 10 leytið:D:D var er algjör hlunkur þetta litla grey alveg heilar 18 komma 5 merkur!! og heilir 53 sentimetrar, (!)(!)það er nú bara það þyngsta barn sem fætt hefur verið í fjölskyldunni lengi:D:D en ja hann kom heim í hádeginu og bara heilsast öllum vel....:D:D en það sem ég á ekki mynd af honum þá fáiði bara svona myndir af teiknimyndakrökkum þangað til ég redda mynd.

 

 en annars lítið að frétta....prófin í næstu viku:$ tek reyndar bara 5 próf:$ og 4 verkleg og eitt bóklegt;)

en allavega hef nú engar merkilegar fréttir að segja í bili eða neitt og við sjáumst bara vonandi á næsta hittingi:D:D

 -Aldís


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 22:59:38 / Kittý

Jóliiiin 2000 og sjöööö

PhonePic0991.jpg picture by hallamargret-KittZPhonePic096.jpg picture by hallamargret
Á Jólagjafalistanum í Ár verður
Pottþétt eitt stk iBoohaha!!
iBoob
PhonePic034.jpg picture by hallamargretPhonePic008.jpg picture by hallamargret
PhonePic043.jpg picture by hallamargret

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 22
Klukkan
Leitarbox